Bíl-leysir
Já, ég er bíllaus þessa stundina. Bíllinn inn í skúr og bíður viðgerðar. Ekkert við því að gera, en ég ferðast með gula vagninum og hef ekki gert það af jafnmiklum móð í rúm níu ár. Flestir finna þeim gula eitthvað til forráttu, en ég slaka á og les blað í vagninum svo ég hef ekkert um þetta að segja nema kannski það að ég mæting mín í síðastliðinni viku var í sögulegu lágmarki. Öxull er bíl-leysir minn.
Lesbók Moggans gerir vel þessa daganna. Eflaust eru margir sem skoða þennan snepil sjaldan. En þeir sem það gera eru verðlaunaðir með margvíslegum greinum um félagsleg málefni, heimspeki, bókmenntir og margt fleira. Í tveimur síðustu tölublöðum hefur imbinn verið tekinn fyrir og þeir sem eiga blaðið heima og hafa ekki í það litið geta lesið um stöðu aðalhetja sjónvarpsþátta í dag. Hvítir, miðaldra karlmenn með baun milli eyrnanna og halda utan um buddu heimilisins. Flestir eiga gáfaðar konur og heimsk ættmenni. Það er víst svo að eini skotspónninn sem eftir er eru hvítir miðaldra karlmenn. Þrýstihópar kvenna, fatlaðra, svartra og fleiri og fleiri hafa séð til þess að ekki er gert grín að þeim. Nóg um það kíkið í lesbókina.
|